Styrktarfélag Magnúsar Mána

Hvert skref skiptir máli

Magnús Máni neitaði að gefast upp. Nú hlaupum við fyrir hann.

Heita á Magnús MánaLesa söguna →
Magnús Máni stendur með göngugrindina sína og medalíu, umkringdur liðsfélögum í Reykjavíkurmaraþoninu
2.027.500 kr.
safnað í ár
118
áheit
40+ millj. kr.
kostnaður við endurhæfingu hingað til

Í fyrra söfnuðust rúmlega 17 milljónir.

Sjá söfnunina í rauntíma á rmi.is →

Sagan

Saga Magnúsar Mána — trú, seigla og þrautseigja

Júlí 2023

Á einum degi breyttist allt

Þrettán ára strákur sem lifði fyrir íþróttir. Eftir stutt veikindi — háan hita og hálsbólgu — missti Magnús Máni skyndilega máttinn fyrir neðan bringu. Líf fjölskyldunnar breyttist á einum degi.

Fyrstu vikurnar

Læknir reyndi að taka frá þeim alla von

Gjörgæsla og Barnaspítalinn tóku við. Sjö dögum eftir áfallið sagði læknir að hann yrði í hjólastól alla ævi. Fjölskyldan ákvað að hlusta ekki — og byrjaði strax að leita leiða.

2023–2024

Nútíma endurhæfing ekki til á Íslandi — Endurhæfing heima, dag eftir dag

Fjölskyldan komst í kynni við indverskan aðila, Rahul Bharti, með yfirgripsmikla þekkingu á taugakerfinu. Lærlingur á hans vegum, Peter frá Póllandi, kom heim til Magnúsar í þrjá klukkutíma á dag í heilt ár, síðan tók Maciej, pólskur sjúkraþjálfari, við. Samhliða æfði Magnús hjá Sjúkraþjálfuninni í Sporthúsinu með Hildi Kristínu og Bjarka ásamt fleiru yndislegu fólki. Engir frídagar, bara skref eftir skref.

Aðfangadagur 2023

Stjarnan á jólatrénu

Markmiðið var sett um haustið: að standa fyrir jól. Á aðfangadag STÓÐ Magnús Máni og setti stjörnuna á toppinn á jólatrénu. Það var stundin sem sannaði að þetta væri hægt.

Madríd

26 vikur í hátæknilegri endurhæfingu

Magnús Máni hefur verið samtals 26 vikur í sérhæfðri hátæknivæddri endurhæfingu í Madríd sem ekki býðst á Íslandi. Mikill kostnaður fylgir því sem ríkið tekur lítið sem engan þátt í.

Reykjavíkurmaraþonið 2025

Magnús Máni gekk síðustu 200 metrana

Umkringdur fjölskyldu og vinum gekk Magnús Máni síðustu 200 metrana í mark. Ógleymanleg stund sem enginn viðstaddur gleymir.

Stuðningshópurinn gengur síðustu metrana í Reykjavíkurmaraþoninu með Magnúsi Mána
Í dag og fram veginn

Nám í Verzló, áframhaldandi endurhæfing og bati

Í dag gengur Magnús Máni með göngugrind og er einnig farinn að æfa sig að ganga með hækjur. Hann er kominn inn í Verzlunarskóla Íslands — þrátt fyrir að hafa misst úr allan 8. bekk og hluta úr 9. bekk. Batinn heldur áfram og Magnús og fjölskyldan halda ótrauð áfram.

Nærmynd af Magnúsi Mána brosandi með medalíu í markinu
Af hverju þurfum við hjálp

Endurhæfingin kostar um 40 milljónir — og fjölskyldan hefur borið hana nánast ein

Sérhæfð endurhæfing sem ekki býðst á Íslandi, dagleg þjálfun heima og ferðir til Madríd hafa kostað um 40 milljónir króna hingað til. Íslenska ríkið hefur aðeins tekið örlítinn þátt í kostnaðinum.

Samkvæmt 24. grein barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna á barn rétt á bestu mögulegu heilbrigðis- þjónustu og endurhæfingu. Fjölskyldan hefur þurft að berjast fyrir hverju skrefi sjálf — og hún gerir það áfram, með hjálp frá fólki eins og þér.

Mannfjöldinn hyllir hópinn í Áfram Magnús Máni bolum þegar þau ganga hjá
Taktu þátt

Svona getur þú hjálpað

Heita á hann

Áheit í gegnum Hlaupastyrk renna beint í áframhaldandi endurhæfingu Magnúsar Mána. Hver króna telur.

Heita á Magnús Mána

Hlaupa fyrir hann

Skráðu þig í Reykjavíkurmaraþonið og veldu Styrktarfélag Magnúsar Mána sem þitt góðgerðar- félag. Sama hvaða vegalengd — hvert skref skiptir máli.

Hlaupa með okkur

Deila sögunni

Saga Magnúsar Mána hreyfir við fólki. Deildu henni með vinum og vinnufélögum — það kostar ekkert en skilar ótrúlega miklu.

Styrkja beint

Þú getur líka lagt beint inn á reikning styrktarfélagsins.

Kennitala
630525-1870
Bankareikningur
0133-15-011384
Reykjavíkurmaraþonið

Hlaupararnir okkar

Fjölskylda og vinir hlaupa í Reykjavíkurmaraþoninu fyrir Magnús Mána. Þú getur heitið á hvern og einn hlaupara á opinberu söfnunarsíðunni á rmi.is — hvert áheit fer beint í áframhaldandi endurhæfingu.

Skrá sig / heita á hlaupara

Vilt þú hlaupa fyrir Magnús Mána? Skráðu þig í Reykjavíkurmaraþonið og veldu Styrktarfélag Magnúsar Mána.

Fjölmiðlar og samfélagsmiðlar

Umfjöllun og samfélagsmiðlar

Saga Magnúsar Mána hefur snert marga og fjölmiðlar hafa fylgst með ferðalaginu.

Myndasafn

Skrefin okkar saman